Punktakeppni Flúðum
Punktamót GBS verður á haldið á Selsvelli á Flúðum laugardaginn 21. júní n.k. Ræst er frá klukkan 11:00 til 12:30. Einungis 40 spilarar geta tekið þátt. Spilaðar verða 18 holur með punktafyrirkomulagi. Allir félagsmenn GBS geta tekið þátt, óháð forgjöf, en grunnforgjöf umfram 36 nýtist ekki í mótinu.
Athugið að teigaval er frjálst í mótinu en þeir sem keppa um besta skor án forgjafar verða að leika af teigum 52 (karlar) og 45 (konur). Mótsgjald er 6000 kr. á mann sem greiðist við skráningu.
Verðlaun eru fyrir fyrstu 3 sætin í karla og kvennaflokki í punktakeppninni og fyrir besta skor án forgjafar karla og kvenna. Auk þess verða nándarverðlaun á par 3 brautum og mögulega einhver útdráttarverðlaun. Skráning fer fram í gegnum golfboxið og verður lokað fyrir skráningu föstudaginn 20. júní kl. 16.00.
Mótið er einungis fyrir meðlimi GBS.
Mótanefnd GBS