Holukeppni
Holukeppni GBS 2025. Reglur um teiga, forgjöf ofl:
-
Leika skal 18 holu hring. Keppendur koma sér saman um á hvaða velli er spilað. Komi leikmenn sér ekki saman um golfvöll skal spilað á Gufudalsvelli í Hveragerði.
-
Ef allt er jafnt eftir 18 holur skal leika bráðabana frá og með 1. braut, þ.e. sá sem fyrr vinnur holu hefur unnið leikinn.
-
Leikmaður ræður af hvaða teig hann leikur og tekur leikforgjöf (vallarforgjöf) hans mið af því.
Notuð verður grunnforgjöf eins og hún er á golf.is þegar leikur fer fram við útreikning leikforgjafar, þó með hámarksleikforgjöf. Hámarksleikforgjöf verður 28 fyrir karla og 32 fyrir konur.
Keppendur verða dregnir saman og sá sem er dreginn fyrst skal hafa samband við andstæðing sinn og boða til leiks. Geri hann það ekki, fellur hann úr leik og andstæðingurinn er kominn í næstu umferð. Ef hinsvegar andstæðingurinn getur ekki mætt til leiks eftir 3 tilraunir, tapar hann leiknum.
Leikmaðurinn með hærri forgjöf þiggur allan leikforgjafarmismun leikmannanna tveggja. Dæmi: Leikforgjöf A er 21, en B er með 16. Mismunur er því 5. Leikmaður A fær þá 1 högg í forgjöf á 5 brautum með forgjafarnúmer 1-5. Dæmi: Ef leikmaður er með 3 holur yfir, þegar 2 eru eftir, hefur hann unnið leikinn og skráð er 3/2. Ef leik lýkur ekki fyrr en á annarri holu í bráðabana er skráð 20. (þ.e. leik lauk eftir 20 holur).
Að leik loknum skal senda úrslitin inn á gbsgolf@outlook.com eða tilkynna úrslitin á facebook grúppu GBS félaga. Skráning fer fram á gbsgolf@outlook.com og líkur 1. júní. Í kjölfarið verður strax tilkynnt hverjir spila saman í fyrstu umferð og póstur sendur út á viðkomandi ásamt því að heildar útdráttur verður settur inn í Facebook hóp klúbbsins.
1. umferð skal lokið eigi síðar en 22. júní. 2. umferð skal lokið eigi síðar en 6. júlí. 3. umferð skal lokið eigi síðar en 10. ágúst. 4. umferð skal lokið eigi síðar en 31. ágúst. Úrslitaleik skal vera lokið fyrir miðjan september.
Vakni einhverjar spurningar varðandi þetta, er hægt að hafa samband við Hákon eða Lúðvík í stjórn GBS; hakon.sigursteinsson@reykjavik.is / gsm 664 7752 eða ludvik.vilhelmsson@reykjavik.is / gsm 693 9343.
Vegleg verðlaun verða í boði fyrir topp 4 sætin. Stefnt er að því úrslitahringur verði eitt holl þar sem keppt verður um fyrsta og þriðja sætið.
Mótstjóri.