Meistaramót GBS 2026
Meistaramót GBS verður í ár haldið hjá Golfklúbbi Öndverðarness fimmtudaginn 24. júlí og hefst kl. 10:30. Spilaður verður höggleikur með og án forgjafar í meistaraflokki og punktakeppni í fyrsta flokki og flokki 60 ára og eldri.
Opnað hefur verið fyrir skráningu, en skráning í mótið er í Golfbox og líkur skráningu miðvikudag 23. júlí kl. 20:00. Mótsgjald verður aðeins kr. 7.500, hamborgari, franskar, sósa og bjór/gos innifalið. Vegleg verðlaun og teiggjafir í boði.
-
Meistaraflokkur kvenna forgjöf: 28 og lægri (rauðir teigar) Höggleikur með og án forgjafar.
-
Meistaraflokkur karla, forgjöf: 24 og lægri (gulir teigar) Höggleikur með og án forgjafar.
-
Fyrsti flokkur kvenna, forgjöf: 28,1 og hærri (frjálst teigaval) Punktakeppni.
-
Fyrsti flokkur karla, forgjöf: 24,1 og hærri (frjálst teigaval) Punktakeppni.
-
Sameiginlegur flokkur 60 ára og eldri karla og kvenna, punktakeppni.
Frjálst teigaval. Einnig verða nándarverðlaun á öllum par 3 brautum og dregið úr skorkortum.
Mótstjórn áskilur sér rétt til að þess sameina flokka ef skráning verður dræm. Verðlaun eru fyrir fyrstu 3. sætin í höggleiknum, með og án forgjafar, í bæði karla- og kvennaflokki samtals 12 verðlaun og fyrir 3 efstu sætin í hverri punktakeppni samtals 9 verðlaun.
Aðeins er hægt að vinna til verðlauna í einum flokki. Hámarksfjöldi í þátttakenda verður 48.
Mótastjórn GBS