Vormót

Vormót

Leikfyrirkomulag er Texas Scramble, tveir saman í liði. Leikurinn fer þannig fram að báðir leikmenn slá af teig og velja síðan betra teighöggið. Sá sem á lakari bolta tekur hann upp og leggur bolta niður innan skorkortslengdar frá þeim stað sem betri boltinn er. Sá bolti sem er valinn skal sleginn fyrst og skal hann ekki hreyfður. Því næst slær hinn þannig gengur leikurinn þar til einn bolti er kominn í holuna. Hámarks grunnforgjöf er 36 og reiknast forgjöf liða sem samanlögð vallarforgjöf liðs, deilt með 3. Hvert lið getur ekki fengið hærri leikforgjöf heldur en forgjöf þess sem er með lægri forgjöf. Ath. að teigaval er frjálst í mótinu en forgjöf tekur mið af vali teiga. Völlurinn er 14 holur og er mótsgjald kr. 3.500 án matar en 5.900 með mat. Tilboð - Ostborgari, franskar, kókteilsósa, Pepsí og 14 holur, kr. 5.900 á manninn. (bjór á krana í staðin fyrir pepsí kr. 6.900). Verðlaun eru fyrir fyrstu 5 sætin auk nándarverðlauna á par 3 brautum. Rástímar eru milli kl. 10:00-11:30. Mótsgjald greiðist í skála. Skráning í mótið er í Golfboxinu, hér er linkur á mótið: https://tourentry.golfbox.dk/?cid=5091668