Golfhermasamningar

Golfhermasamningar

Sælir kæru félagar

Stjórn GBS vil upplýsa um samninga vegna golfherma fyrir virka félaga - en við höfum náð samkomulagi við fimm fyrirtæki og ef fleiri bætast við þá látum við ykkur vita.

Golfhöllin

Golfhöllin býður okkur 25% afslátt og við getum notað kóðann GBS2026 ef við skráum okkur gegnum www.golfhollin.is

Nitjánda

Sérkjör fyrir golfklúbb starfsmanna Reykjavíkurborgar. Nítjánda opnaði nýlega á Bíldshöfða 9, 110 Reykjavík, en þar er að finna 12x nýjustu Scolia Pro pílukerfin, 8x Trackman IO golfherma og 11x sjónvörp. Klúbburinn fær 30% afslátt hjá Nítjándu í pílu og golf. Eins er hægt að halda viðburði/pílumót á sérkjörum.

https://nitjandagolf.is/

Félagsmenn þurfa að láta vita af sér með því að senda tölvupóst á bokanir@nitjandagolf.is. Senda þarf fullt nafn, símanúmer og netfang. Starfsmenn Nítjándu tengja netfangið við bókunarkerfið okkar og birtist í framhaldi 30% afsláttur þegar bókað er á vefsíðunni.

Fullt verð fyrir klukkustund í golfhermi er 5.900kr en með afslætti verður klukkustundin á 4.130kr

Birdie

Fastur 15% afsláttur. Það verður 20% afsláttur núna um jólahátíðir - frá 19.12.25 til 4.1.26. Þið þurfið að setja inn fullt nafn email og síma (ekki KT) þá kemur afslátturinn strax inn í greiðsluferlinu. Ef fólk er búið að breyta um síma eða emailinu þarf að láta vita um það.

https://birdie.is/

Golfbraut

Golfbraut bíður okkur 10% afslátt sem yrði þá tengdur við netfang viðkomandi. Þeir eru með 4 Trackman iO golfherma að Suðurlandsbraut 4, sjá nánar um golfherma þeirra á https://golfbraut.is/

Golfsvítan

Golfsvítan bíður okkur 10% afslátt og þið þurfið að setja ykkur í samband við Golfsvítuna til að fá kóðann fyrir afsláttinn. Þeir eru með lista yfir virka meðlimi GBS.

https://www.golfsvitan.is/